Einsi Kaldi veisluþjónusta

 
Einsi Kaldi er veisluþjónusta, sem tók til starfa 1 maí 2008.

Einsi Kaldi er með starfsemi sína í Höllinni Vestmannaeyjum.

Eigandi er Einar Björn Árnason og er hann matreiðslumaður að mennt.

Einar Björn er uppalinn í Vestmannaeyjum.
 

Einsi Kaldi er metnaðarfullt fyrirtæki, með gott og reynslumikið starfsfólk.



Einsi Kaldi sérhæfir sig í veislum af öllum gerðum og stærðargráðum líkt og brúðkaup, ættarmót, árgangsmót, afmæli, pinnamat, snittur, erfidrykkjur og margt fleira.

Vinsælt er fyrir hópa ofan af fastalandinu jafnt og erlenda ferðamenn að heimsækja Eyjarnar, tilvalið er að fara í úteyjarnar eða
á bát í kringum Vestmannaeyjar.
 

Í Höllini er hægt að taka á móti öllum gerðum af hópum, smáum sem stórum.

Einsi Kaldi er einnig í samstarfi við Volcanó Café sem er nýr staður í hjarta bæjarins, ásamt því að hafa aðgang að fleiri skemmtilegum veislusölum í Vestmannaeyjum t.d. Emmuskemmu, Viking tour bátnum, Golfskálanum, Herjólfsbæ og hús ýmissa félagssamtakanna í bænum.
 

Einsi Kaldi notar mikið staðbundið hráefni, þar leikur fiskur stærsta hlutverkið, enda fæst hann ekki ferskari en ný kominn á land af bátunum við Eyjar.

Einsi Kaldi er öllu vanur og tilbúnir að gera það sem viðskiptavinirnir óska eftir.
 
 
Frekari upplýsingar um Einsa Kalda er hægt að finna á www.einsikaldi.is