Ferðaupplýsingar

Hvernig kemstu til Vestmannaeyja ?

Ef þú ert að koma erlendis frá, þá þarftu auðvitað fyrst að koma þér til Íslands, þá er Icelandair góður kostur þar sem þeir fljúga á marga áfangastaði úti í heimi, fyrir frekari upplýsingar um icelandair, http://www.icelandair.is/ .

Þegar lent er á Keflavíkurflugvelli þá hefurðu möguleikann á að taka flugrútuna (http:www.flybus.is/) , einnig geturðu leigt þér bíl hjá t.d. http://www.hertz.is/ og keyrt þangað sem þú vilt.

Ferðamöguleikar til Vestmannaeyja:

Flugfélag Íslands flýgur daglega milli Vestmannaeyja og Reykjavík.
Flugið tekur aðeins 25 mínútur.

Meiri upplýsingar á http://www.flugfelag.is/

Flugfélag Vestmannaeyja, flýgur frá eftirfarandi stöðum eftir pöntunum, Bakki, Selfoss (20 mín), Skógar (15 min), Hella (14 min) og Reykjavík. Rútufyrirtækið BSI (http://www.bsi.is/) er með áætlun á alla þessa staði frá aðalstöðinni í Reykjavík.
à Aðalflugleið þeirra er þó frá Bakka sem tekur aðeins 5 mínútur

Frekari upplýsingar er hægt að finna á http://www.eyjaflug.is/

Herjólfur er farþega og bílaflutningaskip sem er með daglegar ferðir milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Ferðin tekur um 2 tíma og 45 mínútur.

Herjólfur tekur allt að 500 farþegum og 50 bíla. Um borð er cafetería og hægt er að leigja sér kojur og klefa.

Til að komast til Þorlákshafnar er keyrt vestur frá Reykjavík í gegnum Þrengslin og að suður ströndinni, einnig er hægt að taka rútu nr. 3 frá aðalstöð BSÍ (http://www.bsi.is/). Rútan fer um 1 klst. Fyrir brottför Herjólfs.

Frekari upplýsingar er hægt að finna á http://www.herjolfur.is/