Gönguleiðir

Fyrir fuglaskoðar eru áhugaverð svæði frá Kaplagjótu um Ofanleitishamar suður í Stórhöfða. Um varptímann má sjá flestar þær tegundir fugla sem verpa í Vestmannaeyjum á þessu svæði; sjófugla á sjónum og í berginu, spörfugla og vaðfugla í móunum upp af Hamrinum.

Eins eru Litli höfði, Sæfjall og Stakkabót iðandi af fuglalífi. Fyrir þá, sem eru léttir á fæti, er hægt að mæla með göngu upp á Há yfir Dalfjall niður í Stafsnes. Ávallt er mikið fuglalíf við höfnina og við innsiglinguna gegnt Ystakletti.

Þar má jafnvel, ef heppnin er með, koma auga á skrofu í sjónum, en skrofan verpir í Ystakletti. Þar verpa einnig litla og stóra sjósvala, en þær eru aðeins á ferli um lágnætti.
Á göngu um eldstöðvarnar er best að fylgja akvegum að mestu, en fara heldur styttri göngur inn á hraunið, því að það er víða mjög úfið og illt yfirferðar. Gönguleiðir á Helgafell og Eldfell eru greiðfærar, einnig er auðfarin leið ofan í gíginn í Eldfelli.

Aldrei er of varlega farið á gönguleiðum og ber að varast að fara of nærri bjargbrúnum þar sem víða er bratt og jarðvegur laus í sér.

Gönguleiðir á korti