Vissir þú

Að golfvöllurinn í Eyjum er talinn vera sá allrabesti á Íslandi og einn af best földu demöntunum í heimi golfsins.

Náttúran í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar eru sannkölluð náttúruperla, eyjan er umkringd fjöllum, eldfjöllum og 14 öðrum eyjum sem eru af öllum stærðum og gerðum.

Í Vestmannaeyjum finnur þú einn fallegasta og besta golfvöll í heimi, ef þú hefur gaman af golfi þá máttu alls ekki láta þennan fram hjá þér fara.

Til þess að njóta þess sem að eyjarnar hafa upp á að bjóða, mælum við með því að fara skoðunarferð um Vestmannaeyjar og sérstaklega mælum við með bátsferð í kringum eyjuna, það er svo sannarlega stórkostleg upplifun þar sem siglt er í kringum eyjar, inn í hella ásamt að upplifa það mikla dýralíf sem er í eyjum. Þú gætir alveg eins átt von á því að hópur háhyrninga syndi framhjá ykkur á meðan siglingunni stendur.

Ennfremur mælum við með því að fólk gangi um eyjuna og labbi t.d. á Skansinn, upp á Eldfell eða bara upp það fjall sem er næst þér. Einnig er hægt að leigja vespur í Vestmannaeyjum ef áhugi er fyrir.

Vestmannaeyjar eru sannkölluð paradísareyja með magnþrunga og ósnerta náttúru sem á sér engan líkan.

Trúirðu okkur ekki !!!!! Kíktu þá á myndagallerýið okkar.

Einnig er hægt að hala niður skjámyndum og skjáhvílu á margmiðlunarsíðunni okkar.