Vissir þú

Að um 10.000 manns koma árlega saman í Eyjum til að taka þátt í Þjóðhátíð, stærsta atburði Verslunarmannahelgarinnar.

Nokkrar góðar ástæður fyrir heimsókn til Eyja

Skoðaðu Náttúrugripasafnið. Eina alvöru safnið á Íslandi með lifandi fiska og önnur sjávardýr í búrum. Auk þess frábært safn uppstoppaðra fugla og eitthvert glæsilegasta safn sem til er af íslenskum steintegundum.

Komdu við á Skanssvæðinu, frábæru svæði við innsiglinguna þar sem nýi og gamli tíminn mætast, þar sem hraunið stöðvaðist í eldgosinu 1973. Á Skanssvæðinu er norsk stafkirkja og Landlyst, annað elsta hús í Eyjum þar sem er lítið en merkilegt safn. Gakktu á Heimaklett, hæsta fjall í Eyjum.

Heimaklettur er aðeins 283 m á hæð þannig að þetta tekur ekki neinn óratíma. Búið er að setja stiga við erfiðustu hjallana og því er lítið um eiginlegt klifur. Og útsýnið af toppnum er alveg frábært, sama í hvaða átt er horft.

Sigling umhverfis Eyjar. Sú sigling tekur um hálfan annan tíma og leiðsögumaður er með í för sem e.t.v. leikur á trompet eða saxófón inni í einhverjum af þeim hellum sem siglt er inn í. Fuglalífið í nærmynd og ef heppnin er með má sjá hvali leika listir sínar.

Heimsæktu golfvöllinn í Eyjum og spilaðu níu eða átján holur á velli sem tímaritið Golf Digest valdi sem einn af 200 skemmtilegustu golfvöllum í Evrópu. Sumir verða svo gagnteknir af umhverfinu og útsýninu að þeir hreinlega gleyma að slá hvítu boltana.

Aktu upp á Stórhöfða, vindasamasta stað á Íslandi og líklega í allri Evrópu, þar sem aðeins eru fjórir logndagar á ári að meðaltali og vindhraði hefur farið yfir 30m/sek. Af Stórhöfða er einnig frábært útsýni til allra átta.

Sund í Sundhöllinni þar sem er einhver besta sundlaug landsins, með saltvatni sem gerir sundið léttara. Svo geturðu brugðið þér í gufubað á eftir, nú eða heimsótt þreksalinn.

Skoðaðu Landakirkju, elstu byggingu í Vestmannaeyjum, gamalt og virðulegt guðshús þar sem prédikunarstóllinn er fyrir miðri kirkju, beint ofan við altarið. Á sunnudegi ertu að sjálfsögðu velkominn til messu.

Heimsæktu Byggðasafnið; safn sem búið er að gera svolítið öðruvísi en venjuleg byggðasöfn, einstaklega aðgengilegt, forvitnilegt og „notendavænt“ fyrir ferðamenn og allan almenning.