Vissir þú

Að það er gata í Eyjum sem er nefnd eftir Danakonungi árið 1930 og er gatan kölluð Hilmisgata (Hilmir þýðir konungur)
 

Sparisjóður Vestmannaeyja er staðsettur í hjarta bæjarins að Bárustíg (göngugötunni),  þar finnur starfsmenn með bros og vör sem bjóða þér upp á alla þá bankaþjónustu sem völ er á, svo er einnig hraðbanki á staðnum.

Sparisjóður Vestmannaeyja tekur ríkan þátt í menningarlífi Vestmannaeyja og t.d. leggja þeir sitt af mörkum á goslokarhátíðinni þar sem hin árlegi Sparisjóðsdagur er haldinn, þar er boðið er upp á grillaðar pylsur með tilheyrandi, söngatriði, hoppukastala eða sambærileg leiktæki, keppni í hlaupi, körfu- hand- eða fótboltaþrautir, Götuleikhús og svona mætti lengi telja.

Starfsemin

  • Sparisjóður Vestmannaeyja var stofnaður 3. desember 1942.
  • Sparisjóðurinn er sjálfseignarstofnun.
  • Stjórn hans skipa fimm einstaklingar, tveir stjórnarmanna eru kjörnir af Bæjarstjórn Vestmannaeyja og þrír stjórnarmenn eru kosnir af stofnfjáraðilum á aðalfundi.
  • Starfsmenn Sparisjóðsins voru 18 árið 2001 þar af 17 við bankastörf.
  • Sparisjóður Vestmannaeyja opnaði sérhæfða fjármála- og bankaþjónustu á Selfossi þann 23. júní 2000, Sparisjóðurinn á Suðurlandi.

Hvernig get ég nálgast Sparisjóðinn?

  • Afgreiðsla Sparisjóðs Vestmannaeyja er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:15 til 16:00
  • Á föstudögum er opið samfellt frá 9:15 til 18:00
  • Afgreiðsla Sparisjóðs Suðurlands er opinn frá 9:15-16 alla virka daga
  • Sparisjóður Vestmannaeyja sinnir allri almennri bankaþjónustu hvort sem hún snýr að innlendum viðskiptum eða erlendum. Einnig aðstoðar Sparisjóðurinn viðskiptavini sína í verðbréfaviðskiptum, hvort sem vilja selja eða kaupa verðbréf.
  • Hraðbankar Sparisjóðs Vestmannaeyja eru staðsettir í anddyri Sparisjóðsins við Bárustíg og versluninni 11/11 við Goðahraun í Vestmannaeyjum

Ánægðir viðskiptavinir eru forgangsatriði hjá Sparisjóðunum

  • Til að auðvelda viðskiptavinum sínum að nýta sér möguleikana sem Internetið og heimasíður Sparisjóðanna bjóða upp á, hefur Sparisjóður Vestmannaeyja ákveðið að bjóða þeim viðskiptavinum sem stofna heimabanka upp á frítt stofngjald, ársgjald og fría internetsáksrift.
  • Sparisjóður Vestmannaeyja hefur á að skipa einu fullkomnasta afgreiðslukerfi landsins sem hefur í för með sér aukin þægindi fyrir viðskiptavini sem og starfsmenn.

Sparisjóður Vestmannaeyja leggur ríka áherslu á að þjóna sínum viðskiptavinum af alúð og umhyggju.