Það er með miklu stolti sem við Eyjamenn bjóðum gesti okkar ætíð velkomna til Vestmannaeyja. Hið fjölbreytta mannlíf, heilandi menning og óviðjafnanleg náttúra skipar Eyjunum einstakan sess.

Eins og til að ögra náttúruöflunum rísa þær upp úr Atlandshafinu og eru útvörður Íslands í suðri. Þar gleymist ys og þys borgarlífsins og fas fólks ber með sér nálægð við þetta orkumikla og heillandi svæði. Hér þekkjast allir íbúar og eiga sér sameiginlega sögu sem mörkuð er stórum atburðum og miklum sigrum svo sem því að sigrast á eldgosi í miðri byggð. Landfræðileg einangrun kemur í veg fyrir erilinn sem fylgir nálægð við þjóðvegi. Vestmannaeyjar eru einungis áfangastaður þeirra sem sérstaklega hafa ætlað sér að fara þangað. Þessi heillandi fjarlægð og einangrun ljær staðnum töfrandi og ævintýralegan blæ, og þá ekki síst þeim sem löngum dvelja í erli borgarlífsins.

Það eru staðir í heiminum sem fólk verður að heimsækja og kynnast. Vestmannaeyjar eru einn þessara staða, meðal annars vegna heillandi náttúrufegurðar, fjölbreytilegs dýralífs og þeirrar staðreyndar að þær eru sögulega og landafræðilega séð einn sérstæðasti staður á Íslandi.

Eyjarnar eru hluti af ungu og enn virku eldvirknisvæði.
Flestar eyjarnar urðu til fyrir um 10 til 20 þúsund árum. Yngst þeirra er Surtsey sem reis úr hafi á árunum 1963 til 1966 og hefur hún nú verið tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO og því réttilega nefnd djásnið á þeirri kórónu sem eyjaklasinn myndar. Hið heimskunna gos á Heimaey, sem er eina byggða eyjan í klasanum, var þó jafnvel enn stórkostlegra enda í eina skiptið í veraldasögunni þar sem gos kemur upp innan byggðamarka bæjarfélags. Gosið hófst í janúar 1973 og því lauk ekki fyrr en í júlí sama ár.
Eldfellið sem stendur í bæjarmörkunum varð til í þessu gosi og hraunið sem þá rann, og fól undir ösku sinni um 400 hús, stækkaði Eyjuna um 2,3 ferkílómetra. Minjar sem tengjast þessum náttúruhamförum eru meðal merkustu sögulegra minja á Íslandi öllu þrátt fyrir að vera ekki eldri en raun ber vitni.

Veiðar og vinnsla eru undirstaða fjárhags byggðalagsins. Vestmannaeyjar eru stærsti og öflugasti sjávarbær á Íslandi. Gjöful fiskimið eru allt í kringum Eyjarnar og í gegnum tíðina hafa heimamenn réttilega talað um hafið og fuglabjörgin sem eina öflugustu matarkistu landsins. Þessi ríkulegu fiskimið draga að sér ekki einungis að sér sjómenn sem draga björg í bú heldur bæði stórhveli, smáhveli og
fjölbreyttasta fuglalíf á Íslandi öllu.

Ég er þess fullviss að þeir sem heimsækja Eyjarnar munu þar eignast minningar sem ekki einu sinni tíminn fær máð.

Elliði Vignisson
Bæjarstjóri