Vissir þú

Að þegar Tyrkjaránið fræga stóð yfir 1627, földu yfir 100 Vestmanneyingar sig í helli til að forðast þess að vera rænt, sá hellir heitir í dag Hundraðmannahellir.

Icelandair Volcano Open

Icelandair Volcano open er opið áhugamannamót haldið í byrjun júli ár hvert í Vestmannaeyjum.  

Volcano Open er 2ja daga alþjóðlegt golfmót  og er erlendum golfspilurum að fjölga með hverju árinu.  Það byrjar seinni part föstudags þar sem spilurum er boðið upp á súpu áður en byrjað er spila, en það er byrjað jafnt á öllum teigum. Um kvöldið að loknum leik er boðið upp á "miðnætursnarl", lunda, flatkökur og tilheyrandi.

Seinni daginn er byrjað að spila rétt fyrir hádegi.  Að loknu móti er síðan haldið Lokahóf, með veglegri dagskrá.  Boðið er upp á sjávarréttahlaðborð sem á sér engan líka.   Verðlaunaafhending, söngur og gamansemi er einnig í hávegum höfð.  Upp úr miðnætti halda síðan allir niður í Skvísusund, þar sem goslokahátíðin fer fram.

Volcano Open er einstakt golfmót spilað á gömlu eldfjalli og völlurinn reynir á allar hliðar golfsins, þar sem vindáttinn getur breyst á sömu holu, spilað er við sjóinn og með heilan Dal í bakgrunninum eru nokkrir af þeim þáttum sem þú munt upplifa með að spila í Eyjum.


Völlurinn
Þessi 70 para meistaravöllur er ótrúleg upplifun sem enginn golfáhugamaður má láta fram hjá sér fara. Völlurinn er talinn sá besti á Íslandi og var valinn einn af 200 bestu golfvöllum Evrópu. Íslenska meistaramótið var haldið á vellinum 1996.

Af hverju heitir mótið Volcano Open ?

23. Janúar 1973 voru Vestmannaeyingar minntir á ótrúlegan kraft náttúrunnar. Þessa nótt byrjaði elgdos á Heimaey and íbúar neyddust til að skilja aleiguna sína eftir og flýja á meginlandið. Eldgosið var búið að standa yfir í 5 mánuði þegar það var loksins stöðvað. Heimaey var búinn að stækka um 20% og nýtt fjall hafði myndast, Eldfell. Stór hluti bæjarins og 360 hús voru á kafi í hrauni og eldfjallaösku, það tók yfir tvö ár að grafa upp húsin sem hægt var að bjarga og hreinsa hraunið og öskuna burt. Í stuttan tíma gátu íbúarnir notað hitann frá ennþá glóandi hrauninu til að hita upp húsin sín. Surtsey, annað eldfjall við strendur Heimaeyjar, myndaðist í neðansjávareldgosi og er Surtsey yngsta eyja í heimi, myndaðist 1963. Surtsey er friðað svæði og vísindamenn hafa það einstaka tækifæri að rannsaka hvernig líf planta og dýra myndast þarna.

Vestmannaeyjar eru sannkölluð eldfjallaeyja, þess vegna ber mótið nafnið Volcano Open.